1. |
||||
Hér á allt að fá að flæða
Mamma ýttu mér í aðra átt
Of þreyttur til að taka allt og alla í sátt
Leyfðu opnun fyrir luktar dyr
Því mamma það er allt og eina sem ég vil
Skrattinn með halann milli fótanna
Nærist á heila skreyttum regnhlífum
Þjálfar lausnir í að þreyta sig
Brennimerkir og skýtur rótum
Í halla skal leiðin liggja upp á við
Þjálfa þrautir í að leysa sjálfar sig
Baða sig í geislum sóla
Hópast saman og raðast upp í röð
Allir njóta speki gjallhorna
Gárur vatnins flytja skilaboð
Öldur sandsins sökkva örkinni
Hér á allt að fá að flæða
|
||||
2. |
Nælon
03:23
|
|||
Nælon
Hey nælon
Það hylur höfuðið
Nælon
Í langri bið eftir greiðslu er málið leyst
|
||||
3. |
Á gati
03:05
|
|||
Á gati
Í kring um mig er skipuleg úthlutun
Á því sem meistarinn hefur skapað
Úr efnislegri ringulreið
Verst að ég er á niðurleið
En ég veit hvorki hvað snýr upp eða niður
Þetta er eins og að vera klipptur inn í
Kolniðamyrkur og þyngdarleysi
Ég er að missa mig
En hvernig væri að mynda magnað segulsvið
Til að flýta fyrir samdrætti
Steypa stjörnunum inn á við
Sporna gegn útblæstri
Hjálpaðu mér ég stend á gati
Núna dett ég gríftu mig
Þetta er ekki eins og það á að vera
Ég er að missa mig
|
||||
4. |
Dísæt
02:58
|
|||
Dísæt
Nei jú
Hvað segir þú
Má ég biðja um svar sem að er spurning í sjálfu sér
Dísæt en gjörsamlega óæt
Nema fyrir strandaglópa sem kaldir á mat hrópa
Ég vildi ekki sjá en horfði samt á
Veistu ég held þú kveikir eld
Mundu bara ættartengslin og gleymdu öllu um þrengslin
Sjáðu til það eina sem ég vil
Er að fá að skora hjá þér mark eftir þetta hark
Ég vildi ekki sjá en horfði samt á
|
||||
5. |
Nýtt blóð
03:13
|
|||
Nýtt blóð
Hljóð lyktarlaus kynmök við oddhvasst bein fuglsfjaðrar
fæða gat um tíma
auka greind
og mér blæðir út
Ég sprauta mig með nýju blóði
|
||||
6. |
||||
Kossar á alla þína bleiku bletti
Japanskt vín rautt sjálfskipt villidýr í bjartri nótt
Malbikið hún spurði glansandi: “áttu hvítann flygil?”
bjarta nótt
bjarta nótt
Kolsýrt dimmt djúpt kalt vatn
í rúmi
rafmagnsgítar
Fingrum af ég sendi kossa á alla þína bleikubletti
svarta nótt
svarta nótt
Ekki nota nein lymskubrögð
Komdu beint að efninu og snertu
|
||||
7. |
Perla
02:31
|
|||
Perla
Meðan ég óska mér í flauelsskel flýgur tíminn líka ég
Mín ósk hún hefur ræst
Rofinn er hljóðmúrinn
Ég tilheyri nú þér
Þín ósk hún hefur ræst
Þegar perla er tekin frá móðurskel er hún sjaldgæf rándýr ber
Mín ósk hún hefur ræst
Rofinn er hljóðmúrinn
Ég tilheyri nú þér
Þín ósk hún hefur ræst
|
||||
8. |
Lykill að skírlífsbelti
03:44
|
|||
Lykill að skírlífsbelti
Sýni tennur
Blóðið rennur
Holdið brennur
Als ósjálfráðir taktar
Víma sem gríma
Afskekkt upptrekkt
Spilun með bilun
Sókn í eitthvað framsækið
Eftirsókn
Lykill að skírlífsbelti
Fjórir fætur
Sýndar gætur
Bornarbætur
Haldið aftur af áfram
Hiti sviti
Mældur tældur
Roðnar soðnar
Veður inn á útopnu
Inn á útopnu
Lykill að skírlífsbelti
Notkunarleysi þreytir
|
||||
9. |
Svo þú vilt verða steypt
03:07
|
|||
Svo þú vilt verða steypt
Svo þú vilt verða steypt ha
Bundin upp og gleypt eða hvað
Tómann olíutankinn fylla
Og ungu húðina þína gylla
Oní ruslinu niðrí götunni í blautum fötum sár á hökunni
Eitthvað rifnar þér verður kalt þú finnur regnið út um allt
Og síðan þungann leggjast yfir þig hann er kominn til að taka þig
Og gera allt sem að ekki má hann gerir allt sem að ekki má
En þú vilt verða steypt ha
Boðin upp og keypt eða hvað
Upp á stall þér láta stilla
Með steyptri ásjónu líðinn trylla
|
||||
10. |
Smáborgin
02:59
|
|||
Smáborgin
Ég týndi mér í smáborginni
Bundinn við þinn brjálæðislega draum
Kirkjuturninn eini leiðarvísir minn
Ég finn mig
Finna þig
Aparnir finna mig
Og peninga
Allt sem var áður
er allt sem var áður er allt sem var áður er allt
Bræddu hjarta mitt í þinni hönd
Allt er dimmt og nú er komið kvöld
Ég er fórnardýr og engin bönd
Sofnaðu og sofðu í heila öld
Opinn lófi ómæld völd
Vafinn inn í flugnatjald
Elskan
Sofnaðu og sofðu í heila öld
Allt er dimmt og nú er komið kvöld
|
||||
11. |
Swallow Wallow
03:58
|
|||
Swallow Wallow
With some sacred
Question you stole my invention
You broke my luck
On an island
You’re eyes
You’re black black enterprise eyes
Look like rockets rockets in the skies
The bodies make sounds of pleasure
As you’re game
You’re game with me takes me closer
to the cockpit of you’re primal needs
So Swallow Wallow
Look back twice
Before the best part of you comes crawling to the rest of me
So Swallow Wallow
|
||||
12. |
Á bökkum Dónár
03:52
|
|||
Á bökkum Dónár
Strákar á eyðibýli sátu
Í hægindastólum
Andspænis hvorum öðrum
Brenna af sér augnabrúnir
Af sér brenna augnabrúnir
Brenna og vaxa ekki aftur
Ætla þeir að stinga sér til sunds allsnaktir ofan af bökkum Dónár
Berir að ofan spila á hljómborð
Og raða gömlum hlutum
Upp inn í brotið sjónvarp
Húkka far í frumskóginn með þumalputta
Far í frumskóginn með þumalputta
Húkka far í frumskóginn með þumalputta
Og koma aldrei aftur
Ætla þeir að stinga sér til sunds allsnaktir ofan af bökkum Dónár
Já ég gerði mér gat
Stakk hausnum í gegn
Út hinu megin
En gatið það vill ekki gróa
|
Númer Núll Reykjavík, Iceland
Númer Núll is a 3 piece rock band formed in a small Icelandic fishing village by guitarist/singer Gestur Guðnason. The wheels started turning as the track "Hér á allt að fá að flæða" reached nr.1 on Radio X977 in Iceland and was later announced as one of the 100 most played tracks of the station. Gestur is also known for his work with Stórsveit Nix Noltes and Atónal Blús. ... more
Streaming and Download help
If you like Númer Núll, you may also like:
Bandcamp Daily your guide to the world of Bandcamp